fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Helgi Seljan ósáttur: Menn á smánarlaunum, í ólöglegu húsnæði og Vinnumálastofnun gerði ekkert

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 8. febrúar 2019 11:45

Helgi með rúmenskum verkamönnum í þættinum Kveikur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Seljan, fyrrverandi liðsmaður Kastljóss og Kveiks á RÚV, gagnrýnir bæði Vinnumálastofnun og Stöð 2, varðandi umfjöllun um aðbúnað rúmenskra verkamanna hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu. Bendir hann á að Kveikur hafi bent á fyrir löngu ástandið hjá starfsmannaleigunni en Stöð 2 hafi gleypt hráar skýringar starfsmannaleigunnar á þeim tíma. Þá hafi Vinnumálastofnun lítið aðhafst í málinu. Helgi skrifar á Facebook-síðu sína:

Það er út af fyrir sig guðsþakkarvert að fréttastofa Stöðvar 2 skuli hafa fengist til að fara sjálf á staðinn og kynna sér starfsemi starfsmannaleigunnar Manna í vinnu í Hjallabrekku í Kópavogi, fjórum mánuðum eftir að bent var á að þar byggi fjöldi rúmenskra verkamanna í ólöglegu húsnæði sem þeir greiddu fyrir háa leigu, á meðan þeir fengju smánarlaun sem síðan væru helminguð með alls kyns frádrætti. Þegar sagt var frá þessu í Kveik í október gerði sama fréttastofa lítið annað en að birta athugasemdalaust augljósar rangfærslur og staðleysur starfsmannaleigunnar.

Það er jákvætt að nú hafi fréttastofan sjálf farið og rætt við viðkomandi menn.

Eins og kom fram í fréttum í gærkvöld leikur grunur á að rúmenskir verkamenn séu nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigunni því þeir fá ekki greidd laun og búa í mjög þröngu húsnæði. Helgi sakar Vinnumálastofnun um að hafa lítið gert í málunum í langan tíma þrátt fyrir að hafa haft upplýsingar um misferlið. Hann skrifar:

Að sama skapi hlýtur það að teljast ósvífið ef ekki hreinlega bíræfið að sjá forstjóra Vinnumálastofnunar hreykja sér af aðgerðum gegn starfsmannaleigunni í sama fréttatíma en staðfesta í leiðinni hve illa stofnunin sinnir lagaskyldu sinni um eftirlit með starfsmannaleigum.

Það er alrangt sem forstjórinn hélt fram að frumkvæðið að aðgerðunum nú væri vegna vinnu stofnunarinnar. Gögnin sem Vinnumálastofnun hafði til grundvallar í dag voru færð henni upp í hendur af fjölmiðli, sem ólíkt stofnuninni gaf sér tíma til að setjast niður og ræða við starfsmennina sjálfa.

Og kinnroðalaust býður forstjórinn upp á þá skýringu að aðgerðarleysi stofnunarinnar til þessa sé vegna þess að starfsmannaleigan hafi passað sig á því að fylla út rétta pappíra og haka í rétt box.

Óekki.

Upplýsingar um aðstæður mannanna í Kópavogi; ólöglegt húsnæði, himinháan frádrátt af launum þeirra og kvartanir þeirra undan því að ekki væri gert rétt upp við þá, komu allar fram í haust og hefðu blasað við stofnuninni mun fyrr hefði hún haft minnsta áhuga á að rétta hlut mannanna sem þarna eru og hafa verið. Meðal annars þeirra þriggja sem stigu fram í Kveik og fengu að launum brottrekstur og hafa enn ekki fengið það uppgert sem þeir telja sig eiga inni hjá fyrirtækinu.

En í staðinn sinnir Vinnumálastofnun „skrifborðseftirliti” – rýnir í pappíra – en guð forði þeim frá því að taka sér bíltúr yfir Fossvoginn og ræða við sjálft starfsfólkið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala