Á tólfta tímanum í gærkvöldi var ungur maður handtekinn á hóteli í miðborginni en hann var í mjög annarlegu ástandi og var til vandræða. Hann var vistaður í fangageymslu vegna ástands hans og ítrekaðra afskipta lögreglu af honum fyrr um kvöldið.
Tveir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um ölvun við akstur. Einn til viðbótar var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.