Um fimmleytið í dag var tilkynnt um slagsmál við Skólaveg í Grafarvogi. Þar slógust tveir menn svo heiftarlega að annar var færður með sjúkrabíl á Slysadeild með lífshættulega höfuðáverka. Málið er í rannsókn lögreglu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar í kvöld en auk þessa atviks voru allmargir ökumenn stöðvaðir vegna ölvunaraksturs eða aksturs undir áhrifum fíkniefna.