Morgunblaðið skýrir frá þessu. Kallað hefur verið eftir aðgerðum ríkisins vegna þeirra kjaraviðræðna sem nú standa yfir. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði í síðustu viku að það lægi ljóst fyrir að stjórnvöld þurfi að koma að kjaradeilunum með einum eða öðrum hætti. Annars muni þær ekki leysast.
Morgunblaðið hefur eftir forsætisráðherra að hún sé ekki í neinum vafa um að tillögur átakshópsins séu góðar, bæði til skemmri og lengri tíma. Þá nefndi hún einnig að unnið væri að breytingum á skattkerfinu sem muni gagnast lágtekjuhópum sérstaklega.