Landkönnuðurinn Peter Freuchen varð undir snjóflóði í einni af ferðum sínum árið 1926. Hann komst lífs af með því að búa til hníf úr eigin hægðum og skera af sér fótinn.
Þjónar faraóa í Egyptalandi smurðu sig með hunangi til þess að flugur myndu herja á þá í stað hinna voldugu yfirmanna sinna.
Frá og með 1945 hafa allir breskir skriðdrekar státað af búnaði til að hella upp á te.
Hitler, Mussolini og Stalín voru allir tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels.
Einn valdamesti sjóræningi allra tíma var kínversk fyrrverandi vændiskona að nafni Ching Shih. Hún lést árið 1844.