Starfsmaður Wow Air lenti í líkamsárás síðastliðið föstudagskvöld og var fluttur á bráðadeild Landsspítalans með áverka á höfði. Frá þessu greinir Fréttablaðið og kemur þar fram að brotaþoli hafi verið flugmaður og gerandinn flugþjónn, sem nú hefur látið af störfum.
Talið er að flugþjónninn hafi ráðist á flugmanninn með matardisk og að töluvert af blóði hafi sést á vettvangi. Atvikið átti sér stað á Hard Rock Café en þar fór fram skemmtikvöld sem var skipulagt af starfsmannafélagi Wow Air. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi Wow Air, staðfestir að líkamsárásin hafi átt sér stað og segir að brotaþolinn hafi fengið viðeigandi aðstoð og sé nú á batavegi.
Starfsmenn flugfélagsins fengu allir tölvupóst frá flugfélaginu um helgina en þar kemur fram að margir hefðu haft áhyggjur eftir árásina skyndilegu. Þá er minnst á að margir hafi myndir af árásinni á símum sínum og eru allir beðnir um að eyða myndunum.