Hrókurinn býður öllum vinum og velunnurum í Pakkhús Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn, á laugardaginn klukkan 14-16. Þar verður haldið áfram að fagna 20 ára afmæli félagsins, með sérstakri áherslu á nýafstaðna hátíð í Kullorsuaq á Grænlandi, 1060 km. norðan við heimskautsbaug. Leiðangursmenn sýna ljósmyndir úr ferðinni, og teikningar barnanna í Kullorsuaq, sem tóku þátt í listsmiðju Hróksins og Pennans.
„Liðsmenn Hróksins þakka innilega hlýhug og góðar kveðjur í tilefni afmælisins, og vonast til að sem flestir leggi leið sína í Pakkhús Hróksins á laugardag,“ segir í tilkynningu frá Hróknum.
Kullorsuaq, sem þýðir ,,stóri þumall“, fagnar í ár 90 ára afmæli, og markaði heimsókn Hróksins hápunkt hátíðarhalda í tilefni afmælisins. Íbúar eru um 450, og flykktust bæjarbúar á öllum aldri á hátíðina. Máni Hrafnsson leiðangursstjóri kenndi öllum börnum bæjarins mannganginn, Joey Chan stóð fyrir listsmiðju, og sirkuslistamennirnir Axel Diego og Roberto Magro kenndu sirkuslistir. Í hátíðarlok var efnt til sirkussýningar með börnum bæjarins, viðurkenningar veittar í listsmiðjunni, og skákfélag og skákskóli sett á laggirnar.
Hrókurinn er jafnframt að hefja söfnun jólagjafa fyrir börn á Grænlandi, ásamt Kalak, vinafélagi Íslands og Grænlands, og tekur fagnandi við gjöfum fyrir börn og ungmenni, 18 ára og yngri. Óskað er eftir nýjum fatnaði, leikföngum eða nytsamlegum og góðum gjöfum.
Þá verður afmælishlutaveltu Hróksins formlega hleypt af stokkunum, en verðlaun eru m.a. glæsileg listaverk eftir Huldu Hákon, Tolla, Mireyu Samper, Daníel Magnússon, Valgarð Bragason og Erlu Þórarinsdóttur, auk gjafabréfa frá Air Iceland Connect, Norðurflugi, Þjóðleikhúsinu og fjöldi bókavinninga.