Hagnaður heildsölunnar Core ehf. jókst um 528% á milli ára þökk sé vinsælda drykkjarins Nocco. Hagnaðist heildsalan um 149 milljónir í fyrra samanborið við 23 milljónir árið á undan. Viðskiptablaðið greinir frá þessu í dag. Fór ársveltan úr 440 milljónum í 1,1 milljarð á milli ára.
Core var stofnað árið 1999 og er í eigu Ársæls Þórs Bjarnasonar og Kamillu Sveinsdóttur, þar starfa 15 manns. Ársæll segir að afkoman sé Nocco að þakka:
“Við erum samt að flytja inn fjölda annarra vara sem hafa notið vinsælda. Við byrjuðum á að flytja inn vörur undir merkjum Natures Best, sem heitir QNT í dag. Þá erum við einnig að flytja inn Froosh, sem hefur oft á tíðum hefur verið mest seldi djúsinn á Íslandi. Einnig erum við með Barebells, prótein-súkkulaðistykki, sem hafa verið gríðarlega vinsæl, sem og heilsusnakkið PopCorners. Við höfum oft náð flugi með ýmsum vörum en þó aldrei eins og núna með Nocco,” segir Ársæll.
Hann segir vinsældirnar koma á óvart: „Vinsældirnar endurspegla samt að mínu mati breytt neyslumynstur fólks. Það er ekki langt síðan fólk byrjaði að drekka kaffi, jafnvel á táningsaldri, og notaði oft strásykur til að bæta bragðið en svo er ekki í dag. Þessir koffeindrykkir, sem eru á markaðnum núna, hafa að mörgu leyti komið í staðinn fyrir kaffið. Þetta er nýi kaffidrykkurinn.“