Fimmtán ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar kemur fram að sá sem hraðast ók mældist á 159 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetra hraði á klukkustund. Undir stýri var erlendur ferðamaður sem varð eftir þennan ofsaakstur 230 þúsund krónum fátækari.