fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

„Þetta hefur verið skemmtilegt ævintýri, en Hrókurinn er rétt að byrja!“

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Sunnudaginn 16. september 2018 09:00

Hrafn, Guðni forseti, Bergsteinn í UNICEF og Róbert eftir velheppnað maraþon 2018 í þágu barna í Jemen.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrókurinn og Edda gáfu á sínum tíma 25.000 eintök af bókinni góðu, Skák og mát.

Skákfélagið Hrókurinn fagnaði á miðvikudaginn 20 ára afmæli og af því tilefni er sannarlega efnt til margvíslegra viðburða, jafnt á Íslandi og Grænlandi. Í dag, föstudaginn 14. september, klukkan 17, hefst Afmælismót Hróksins í Ráðhúsi Reykjavíkur. Meðal keppenda eru margir bestu skákmenn Íslands, áhugamenn úr öllum áttum, og flest efnilegustu ungmennin okkar. Heiðursgestur er Regina Pokorna, sem tefldi með hinu sigursæla liði Hróksins á Íslandsmóti skákfélaga.

„Keppendalistinn endurspeglar vel kjörorð okkar í Hróknum: Við erum ein fjölskylda,“ segir Róbert Lagerman, varaforseti Hróksins. „Yngst er hin 11 ára Batel Goitom Haile, ein efnilegasta skákstúlka Íslands, og aldursforsetinn er sjálfur Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari okkar og sannkölluð goðsögn. Alls verða átta stórmeistarar meðal keppenda, en líka harðsnúnir áhugamenn á öllum aldri og úr öllum áttum.“

Regina Pokorna og hinn efnilegi Þorgeir K. Blöndal takast á við skákborðið.

Það sem byrjaði sem brandari varð að köllun

Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, segir að undanfarin tuttugu ár hafi verið ævintýri líkust. „Við höfum heimsótt alla grunnskóla á Íslandi og hvert einasta sveitarfélag. Upphaflega var félagið stofnað í hálfgerðu bríaríi, við ætluðum bara að setja saman keppnislið fyrir Íslandsmót skákfélaga, byrja í fjórðu deild og vinna eina deild á ári og ná sjálfum Íslandsmeistaratitlinum á skemmsta mögulega tíma. Það tókst, en við lærðum margt á þeirri vegferð, meðal annars að gullverðlaun eru lítils virði miðað við að geta útbreitt gleði og vináttu og skapað ánægjustundir. Við áttuðum okkur á því, að skák er hið fullkomna verkfæri, enda geta allir teflt sér til ánægju, burtséð frá aldri, kyni, þjóðerni, bakgrunni eða líkamsburðum. Og fyrst og fremst: Skák er skemmtileg.“

Skák er skemmtileg! Frá Ittoqqortoormitt, þar sem Hróksliðar halda árlega páskaskákhátíðir.

Vorum komnir með nóg af gulli

Hrókurinn hætti sem keppnisfélag árið 2004 eftir samfellda sigurgöngu í sex ár. „Við ákváðum að snúa okkur alfarið að grasrótarstarfi og því að útbreiða fagnaðarerindið,“ segir Róbert. Í þeim anda hafa þeir Hrafn og Róbert heimsótt Barnaspítala Hringsins flesta fimmtudaga síðan 2003, unnið ötullega að skákstarfi meðal fólks með geðraskanir og auk þess heimsótt allt frá leikskólum til dvalarheimila aldraðra, fangelsa og athvarfa. „Við vorum komnir með alveg nóg af gullpeningum og töldum tímanum betur varið í að virkja sem flesta,“ segir Róbert.

Hrókurinn er sannarlega ekkert venjulegt skákfélag. Hróksliðar hafa unnið með samtökum á borð við Fatimusjóðinn, UNICEF á Íslandi, Rauða krossinn, Hjálparstarf kirkjunnar og Barnaheill, ekki síst að fjársöfnunum í þágu góðra málefna. Síðustu fjögur árin hefur Hrókurinn að auki staðið fyrir fatasöfnun í þágu barna og ungmenna á Grænlandi, en þar eru lífskjör til muna lakari en á öðrum Norðurlöndum.

Hróksmenn hafa heimsótt fangelsi á Grænlandi og Íslandi. Hér með Nigel Short í Nuuk.

Landnám á Grænlandi

„Þegar við héldum fyrsta skákmótið í sögu Grænlands árið 2003 óraði okkur ekki fyrir því, sem síðan hefur gerst,“ segir Hrafn. Skák var þá að kalla óþekkt á Grænlandi en það hefur heldur betur breyst. „Fyrsta mótið var mikil upplifun, enda vorum við flest að koma til Grænlands í fyrsta skipti, en nutum ómetanlegrar liðveislu Benedikte Abelsen, fyrrverandi ráðherra á Grænlandi og formanns Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands. Nú, fimmtán árum síðar, höfum við farið um 80 ferðir til Grænlands, og haldið hátíðir vítt og breitt um hið mikla land. Við höfum eignast ótal vini þar og eins og ég þreytist ekki á að segja eru Íslendingar allra þjóða heppnastir þegar kemur að nágrönnum. Grænland hefur auðgað líf mitt, og allra þeirra sem hafa tekið þátt í starfi okkar þar.“

Afmæliskaka beið Hróksliða á Grænlandi

Stolt stúlka á Grænlandi með bikar frá Hróknum.

Á miðvikudaginn, daginn sem Hrókurinn fagnaði tvítugsafmælinu, tóku fjórir knáir Hróksliðar land í Kullorsuaq, 450 manna bæ á 74. gráðu á vesturströnd Grænlands. Þar stendur nú sem hæst hátíð, þar sem skák, sirkusskóli og listasmiðja fyrir börn eru á dagskránni. „Það var tekið ævintýralega vel á móti okkur,“ segir Máni Hrafnsson, leiðangursstjóri Hróksins í Kullorsuaq. Heimamenn, sem nú fagna 90 ára afmæli þessa mikla veiðimannabæjar, biðu Hróksliða á bryggjunni og síðan var efnt til samsætis. „Þau voru meira að segja tilbúin með afmælisköku með merki Hróksins og svo sungu börnin í bænum fyrir okkur afmælissönginn,“ segir Máni, sem tekið hefur þátt í skáklandnáminu frá upphafi. Hrókurinn hefur farið vítt og breitt um Grænland, en aldrei komist jafn norðarlega og nú.

Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins frá upphafi.

Óendanlegt þakklæti

„Okkur er efst í huga þakklæti,“ segir Hrafn, aðspurður hvað standi upp úr eftir tuttugu ára starf. „Við erum óendanlega þakklát þeim ótal mörgu sem hafa tekið þátt í starfi okkar, stutt okkur í orði og verki og hvatt okkur til dáða. Ég er hræddur um að jafnvel heilt tölublað af DV dygði ekki til að telja upp alla þá sem hafa lagt okkur lið við að útbreiða boðskap vináttunnar og kærleikans.“

Aðspurður um næstu verkefni segir Hrafn: „Það er ýmissa tíðinda að vænta. Við ætlum að nota veturinn til að fara um landið og stefnum að því að heimsækja enn á ný öll sveitarfélög á Íslandi. Við Róbert höfum notið þeirra forréttinda að bera hita og þunga af þessu skemmtilega starfi og kannski mál til komið að svipast um eftir arftökum. Eitt er þó víst: Ævintýrið er rétt að byrja.“

Kristín Anna Claessen lætur sig aldrei vanta í fjáröflunarmaraþon Hróksins í þágu góðs málstaðar.
Hróksliðar á Grænlandi. Róbert undirbýr kvöldverð undir vökulum augum Kristjönu G. Motzfeldt, heiðursforseta Hróksins.
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands, teflir í Ráðhúsinu. Hér er hann í Djúpavík á Ströndum ásamt Hrafni árið 2010.
Ekki bara skák. Sirkuslistamennirnir Bjarni Árnason og Axel Diego voru í föruneyti Hróksins í Uummannaq á síðasta ári og bræddu allra hjörtu.
Ungur pjakkur í Kulusuk með prjónahúfu frá Íslandi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Landsmenn hvattir til að fara yfir bólusetningar sínar áður en farið er í ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna

Landsmenn hvattir til að fara yfir bólusetningar sínar áður en farið er í ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið