Gjöld á áfengi og tóbak hækka um 2,5% í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2019.
Fram kemur í frumvarpinu að áætlaðar tekjur af áfengi og tóbaki verði samanlagt 25,6 milljarðar króna árið 2019. Þar af eru áætlaðar tekjur af áfengisgjaldi 19,8 milljarðar og 5,9 milljarðar af tóbaki.
Segir einnig að dregið hafi úr tóbakssölu á þessu ári og innheimtan á fyrri helmingi árs sé undir áætlun fjárlaga. Gert sé ráð fyrir frekari samdrætti í sölu tóbaks á næsta ári en aukningu í sölu áfengis.