fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Þjóðhátíð lokið – Tvö kynferðisbrotamál til rannsóknar hjá lögreglu – Einn fluttur til Reykjavíkur eftir alvarlega líkamsárás

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 6. ágúst 2018 16:01

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk í nótt og á samráðsfundi sem haldinn var í dag er talið að gestir hafi verið 14-15 þúsund.

„Það var samdóma álit viðbragðsaðila að þrátt fyrir nokkurn vind á síðasta degi hafi gengið vel að aðstoða gesti og almennt hafi skipulag gengið vel,“ segir jafnframt í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur nokkur mál til rannsóknar eftir hátíðina. Í tveimur þeirra er grunur um kynferðisbrot, en bæði málin komu upp aðfararnótt mánudags.

Fjórar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í gærkvöldi og nótt. S‘u alvarlegasta þeirra átti sér stað aðfararnótt sunnudags, en var tilkynnt til lögreglu um kvöldmatarleytið í gær. Þolandinn var fluttur til Reykjavíkur vegna innvortis meiðsla.

Í tilkynningu lögreglu kemur fram að árásarþoli vildi ekki segja til árásarmannsins en eftirgrennslan leiddi til þess að árásarmaðurinn fannst og var færður til skýrslutöku þar sem hann játaði sök.

Í öðru máli veittist maður að kærustu sinni með höggum og spörkum. Hans var leitað en fannst ekki. Hinar líkamsárásirnar voru minniháttar og eru til rannsóknar.

Einnig leitaði kona sér aðstoðar lögreglu vegna kynferðisbrots sem hún varð fyrir á höfuðborgarsvæðinu í fyrra og hyggst hún leggja fram kæru hjá lögreglunni í Reykjavík.

Einn gisti fangageymslur í nótt vegna ölvunar og óspekta. Einnig voru sextán umferðarlagabrot kærð um helgina.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Í gær

Ísraelar hefndu sín í nótt: Hvað gera Íranir núna?

Ísraelar hefndu sín í nótt: Hvað gera Íranir núna?
Fréttir
Í gær

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel
Fréttir
Í gær

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt