Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú opnuðu heimili sitt á Bessastöðum fyrir almenningi um laugardaginn var. Óhætt er að segja að upptækið hafi mælst vel fyrir en yfir þúsund manns kíktu í heimsókn til þeirra hjóna. Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Guðna.
„Ég þakka öllum fyrir komuna og ekki síður starfsliði og sjálfboðaliðum sem voru okkur til halds og trausts. Það var einstaklega gaman að taka á móti góðum gestum, þeirra á meðal öldungum sem komu til Bessastaða í fyrsta sinn á langri ævi og yngsti gesturinn var aðeins nokkurra mánaða gamall,“ segir í færslunni.
Það voru ekki bara Íslendingar sem kíktu í heimsókn en ferðamenn sem áttu leið hjá þáðu einnig heimboðið. „ Svo ráku ferðamenn inn nefið og höfðu á orði að óvíða væri þjóðhöfðingjasetur eins vel í sveit sett og hér á Íslandi. Vegavinnumenn frá Slóvakíu litu líka við, kurteisin uppmáluð eins og auðvitað allir á þessum skemmtilega degi. Já, það er gaman að taka á móti góðu fólki á Bessastöðum!“