Gífurlegt tjón varð þegar bruni átti sér stað hjá bílaumboðinu Öskju snemma í morgun. Alls skemmdust átta bílar í brunanum sem var tilkynntur um klukkan 5 í nótt og var slökkvilið kallað strax út. Í samtali við DV sagði Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, að bílarnir hefðu ekki allir verið í eigu fyrirtækisins. Fjórar bifreiðar voru í eigu Öskju en hinir fjórir voru í eigu einstaklinga sem voru með bifreiðarnar á leið í viðgerð hjá Öskju. „Eldurinn fer hratt á milli bíla og sem betur fer voru mjög snör handtök hjá slökkviliðinu sem kom fljótt á vettvang. Það gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins eftir komu slökkviliðsins“.
Að sögn Jóns Trausta náðist atvikið á mynd á eftirlitskerfi fyrirtækisins. Upptökurnar hafa verið afhentar lögreglunni og er rannsókn í fullum gangi. „Það voru bæði vitni sem hafa gefið sig fram og síðan höfum við efni úr öryggismyndavélum“. Jón Trausti staðfesti einnig við DV að um íkveikju væri að ræða en gat ekki staðfest hversu margir hafi verið að verki.