Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum maísbaunum vegna gruns um listeríu. Um er að ræða tvær vörutegundir frá framleiðandanum Greenyard, innfluttar af Madsa ehf. Vörurnar voru seldar til ýmissa stóreldhúsa, mötuneyta og Stórkaups.
Madsa ehf. í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað eftirtaldar vörur:
GRE034 Maískorn
PINGUIN SWEET CORN KERNELS
2,5 kg pokar
Frystivara
Strikamerki: 5411683230588
GRE133 Mexíkóblanda
PINGUIN MEXICAN MIXED VEGETABLES
2,5 kg pokar
Frystivara
Strikamerki:5411683232117
Innköllunin miðast við öll lotunúmer framleidd milli 13. ágúst 2016 til 20. júní 2018. Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta ekki vörunnar og hafa samband við Madsa í síma 5172727 eða á netfangið madsa@madsa.is