Gaui M. Þorsteinsson segir að það sé ekkert gamanmál að yfirbuga flugdólg. Við sögðum frá því í gær að Gaui yfirbugaði trylltan mann um borð í vél WOW Air frá Alicante til Keflavíkur á föstudaginn. Sjá nánar hér.
Um var að ræða Íslending á miðjum aldri sem var drukkinn og mjög illskeyttur. Vakti hann öðrum farþegum í flugvélinni ótta, ekki síst börnum. Gaui og þrír félagar hans yfirbuguðu manninn og bundu hann niður í sætið. Komu þeir þannig í veg fyrir að millilenda þyrfti flugvélinni á Írlandi. Gaui tognaði á fingri í átökum við manninn og hefur ekki náð að jafna sig á þeim meiðslum.
Vegna fyrirspurna og athugasemda um málið hefur Gaui fundið sig knúinn til að senda frá sér nýja yfirlýsingu um það á Facebook-síðu sinni. Þar tekur hann fram að manninum hafi ekki verið veitt áfengi um borð í flugvélinni heldur hafi hann drukkið sig ölvaðan af birgðum sem hann hafði meðferðis. Þá segir Gaui að engum hafi verið skemmt yfir atvikinu heldur hafi það tekið mjög á fólk. Yfirlýsing Gauja um málið er svohljóðandi:
Ég vil koma á framfæri smá varðandi flugið sem ég lenti í með manngreyið. Flugfreyjurnar gáfu honum ekki dropa að drekka og hann var ekki sjáanlega ölvaður þegar hann kom um borð. Flugfreyjurnar gerðu allt rétt og reyndu að bregðast við áður en tekið var á loft en það var of seint því miður. Hann hafði með sér vín úr fríhöfninni í Alicante og drakk það óspart og óséð. Og fyrir þá sem halda að þetta hafi verið einhver gleði að þurfa lenda í átökum í svona litlu rými með fulla vél af fólki þá er það kolrangt. Hvorki ég né þeir sem voru með mér í þessu vorum hlæjandi og okkur var ekki skemmt. Fólk í vélinni var skelkað og leið illa með að hafa hann í þessu ástandi. Ég var heldur ekkert í neinni skemmtiferð og bað ekki um þessar aðstæður. EN flugfreyjur WOW voru frábærar og gerðu allt hárrétt í þesum aðstæðum og sem betur fer tókst okkur að halda aðstæðum öruggum og forðast að þurfa að lenda á Írlandi með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn svo ekki sé minnst á að hafa bjargað manngreyinu að þurfa að lenda í tilheyrandi kostnaði og veseni þar.
Svona aðstæður koma ekki upp reglulega og sem betur fer voru menn á réttum stað og réttum tíma og allir tilbúnir að hjálpa. Þannig eigum við að vera.
Meira hef ég ekki um þetta að segja.
Ást og virðing
-Gaui