fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Lögreglan á Akureyri vopnaðist

Auður Ösp
Föstudaginn 20. júlí 2018 09:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning kl. 03:03 í nótt um mann sem væri á Svalbarðseyri og hefði sést handleika vopn á almannafæri. Vopnaðir lögreglumenn fóru frá Akureyri til að huga að þessu. DV hafði samband við lögregluna á Norðurlandi Eystra sem fékkst ekki til að gefa upp hvers konar vopn var á ferðinni, vegna rannsóknarhagsmuna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi Eystra. Eftir nokkra rannsóknarvinnu bárust böndin að húsi í þorpinu og reyndist maðurinn, sem tilkynntur var um, vera þar. Hann var í annarlegu ástandi en sýndi ekki mótspyrnu og fannst vopnið í fórum hans.

Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu meðan þess er beðið að hann komist í ástand til að gefa skýrslu. Ekki er vitað á þessari stundu hvað manninum gekk til og ekki er talið að fleiri tengist málinu með beinum hætti. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo komnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“