Hallgrímur Birkisson er þekktur hestamaður. Hann hefur um árabil verið einn öflugasti sölumaður hrossa á Suðurlandi þar sem hann hefur selt allt frá ungum og efnilegum hrossum upp í kynbótahross í fremstu röð. Þá hefur Hallgrímur haft ungar stúlkur til að aðstoða hann við tamningar. Nú hefur Hallgrímur verið ákærður fyrir nauðgun, og það í annað sinn. Hallgrímur var 35 ára þegar hann var kærður, árið 2005, grunaður um að nauðga 15 ára stúlku. Stúlka um tvítugt lagði nýverið fram kæru og sakaði Hallgrím um grófa nauðgun. Hefur héraðssaksóknari ákært Hallgrím. Í samtali við DV kveðst Hallgrímur saklaus af báðum ákærum.
Hallgrímur er öllum hestamönnum kunnur eins og segir á vef Hestafrétta en hann hefur stundað hestamennsku frá barnæsku. Ungur að árum byggði hann upp hrossaræktarbú, reiðhöll og tamningastöð. Hann er með landsdómararéttindi og þrátt fyrir kæru og svo ákæru hefur hann ekki slegið slöku við og mætti á síðasta landsmót hestamanna. Hallgrímur hefur selt ótal hross bæði innanlands og utan og þá heldur Hallgrímur úti síðunni HB hestar. Hefur Hallgrímur verið fastagestur á síðum blaða og tímarita í tengslum við hestamennskuna. Þá hefur Hallgrímur vegna starfsins einnig ferðast út fyrir landsteinana. Það var þá sem Hallgrímur var fyrst ákærður fyrir nauðgun. Í frétt DV árið 2005 sagði:
„Hallgrímur er ákærður fyrir að nauðga 15 ára breskri stelpu í bænum Hookwood í Bretlandi. Þetta á að hafa gerst þann 31. maí á þessu ári. Hallgrímur er giftur maður og á eitt barn með konu sinni. Hann býr á Íslandi en er með annan fótinn í Hookwood, þar sem nauðgunin á að hafa átt sér stað.“
Hallgrími var sleppt gegn tryggingu. Verjandi Hallgríms var lögmaður að nafni David Forsyth. Sagði hann að Hallgrímur viðurkenndi að hafa stundað kynlíf með stúlkunni en ekki vitað að hún væri 15 ára gömul. Einnig hélt hann fram að stúlkan hefði samþykkt að fara með honum í rúmið. Stúlkan hélt hins vegar fram að um nauðgun hefði verið að ræða. Í DV á þessum tíma kom aldrei fram hvort Hallgrímur hefði hlotið dóm vegna málsins. Í samtali við DV öllum þessum árum síðar kveðst hann hafa verið sýknaður.
Héraðssaksóknari hefur nú ákært Hallgrím fyrir nauðgun sem á að hafa átt sér stað í febrúar 2017, en stúlkan sem málið varðar var starfsmaður Hallgríms. Er Hallgrími gefið að sök að hafa beitt ungu konuna ofbeldi og nauðgað henni. Hann er sakaður um að hafa komið aftan að stúlkunni, slegið að hana í rassinn og káfað á kynfærum hennar innanklæða.
Þá er Hallgrímur sakaður um að hafa girt niður um hana, hent henni niður á fjóra fætur, snúið henni á bakið og svo nauðgað henni. Samkvæmt ákæru reyndi unga konan að stöðva hann, bæði með að grátbiðja hann að hætta, með því að segja nei og berjast gegn meintu ofbeldi Hallgríms. Í ákæru kemur fram að konan hafi hlotið marbletti og eymsli á kynfærum vegna árásarinnar sem hann er grunaður um að hafa beitt hana. DV reyndi ítrekað að ná tali af Hallgrími og þegar loks náðist í hann var hann tregur til að tjá sig um málið.
„Ég er saklaus af því, það er alveg á tæru.“
Þú varst til umfjöllunar í DV fyrir margt löngu út af öðru máli þar sem þú varst sakaður um að nauðga 15 ára stúlku í Bretlandi? Hvernig fór það mál?
„Ég var algjörlega saklaus af því máli og sýknaður af þeirri kæru.“
Aðspurður hvort hann vildi tjá sig frekar um hið meinta hrottalega ofbeldi sem hann er sakaður um, sagði Hallgrímur að hann vildi það „helst ekki.“ Hann ætti lítil börn og vildi helst fá niðurstöðu í málið áður en hann tjáði sig frekar við fjölmiðla.
Héraðsaksóknari telur framburð hinnar ungu konu trúverðugan og gaf eins og áður segir út ákæru á hendur Hallgrími. Má búast við að málið verði tekið fyrir í september.