fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Sunna Elvira sögð hafa farið fram fyrir röðina með aðstoð bróður síns – „Ég neita því að ég hafi komið nálægt þessari úthlutun“

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 13. júlí 2018 10:00

Sunna Elvira

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sunna Elvira Þorkelsdóttir og bróðir hennar, Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, á góðri stund.

Sunna Elvira Þorkelsdóttir fékk á dögunum úthlutað íbúð í húsnæði SEM- Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra við Sléttuveg 3 í Reykjavík. Samkvæmt heimildum DV er biðlisti eftir íbúð í húsinu og hefur einn einstaklingur meðal annars beðið í rúmt ár. Forsvarsmenn félagsins vísa því alfarið á bug að Sunna Elvira hafi notið óeðlilegrar fyrirgreiðslu og halda því fram að enginn biðlisti sé til þess að fá íbúð í húsinu. Bróðir Sunnu Elviru, Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, situr í stjórn húsnæðisfélagsins. Hann segist ekki hafa haft neina aðkomu að umsókn systur sinnar.

Flutti inn fyrir mánuði

Eins og frægt er orðið slasaðist Sunna Elvira alvarlega þegar hún féll fram af svölum á þáverandi heimili sínu í Malaga-borg á Spáni í janúar á þessu ári. Hvað átti sér stað ytra liggur ekki fyrir en afleiðingarnar voru skelfilegar. Sunna Elvira þríhyggbrotnaði við fallið og fékk að lokum þann úrskurð að hún væri lömuð til lífstíðar. Þjóðin fylgdist síðan agndofa með baráttu hennar og aðstandenda fyrir því að fá sómsamlega heilbrigðisþjónustu ytra og ekki síður að hún fengi ferðafrelsi til Íslands.

Það tókst loks í byrjun apríl og þann níunda þess mánaðar lenti sjúkraflugvél með Sunnu Elviru innanborðs á Keflavíkurflugvelli. Var hún þegar flutt á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensás þar sem hún undirgekkst viðeigandi meðferð.

Í byrjun júní, fjórum og hálfum mánuði eftir fallið afdrifaríka, tilkynnti Sunna Elvira á Facebook-síðu sinni að hún væri útskrifuð af Grensási og væri flutt í litla íbúð ásamt dóttur sinni og gæti séð um sig sjálf.

 

Sléttuvegur 3 er í eigu Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra (SEM). Sunna Elvira fékk úthlutað íbúð í húsinu á dögunum og herma heimildir DV að hún hafi verið tekin fram fyrir aðra sem voru á biðlista eftir íbúð. Bróðir hennar, Rúnar Björn, situr í stjórn samtakanna en hann og aðrir stjórnarmeðlimir vísa því alfarið á bug að nokkur biðlisti sé til staðar. „Ég sagði mig alveg frá þessu tiltekna máli,“ segir Rúnar Björn í samtali við DV.

Eins og áður segir er umrædd íbúð í fjölbýlishúsi SEM við Sléttuveg 3. Um er að ræða 20 íbúða blokk sem byggð var árið 1990 og utan um félagið var stofnað sérstakt húsnæðisfélag. Mænuskaddaðir, sem eru félagar í SEM, geta sótt um íbúðir að Sléttuvegi og úthlutar stjórn húsnæðissamtakanna þeim þegar þess er kostur.

Skrifstofan sagði að bið væri eftir íbúðum – stjórnarmenn vísa því á bug

DV barst ábending um að Sunna Elvira hefði verið tekin fram fyrir tvo aðra einstaklinga á biðlista eftir íbúð að Sléttuvegi. Hefur blaðið undir höndum símtal þar sem einstaklingur hringir inn á skrifstofu samtakanna og óskar eftir upplýsingum um hvort að mænusködduð mágkona hans gæti gert sér vonir um íbúð að Sléttuvegi. Var honum þá tjáð að sjálfsagt væri að senda inn umsókn en að tveir aðrir væru á biðlista og hefði annar þeirra beðið í rúmt ár.

DV óskaði eftir útskýringum frá formanni SEM, Arnari Helga Lárussyni, sem einnig á sæti í stjórn húsnæðisfélagsins. Sagðist Arnar ekki hafa upplýsingar um hvort biðlisti væri eftir íbúðum að Sléttuvegi og að reglurnar fyrir úthlutun væru ekki meitlaðar í stein. Þannig væru nýslasaðir í forgangi og þeir sem ekki hefðu fengið íbúð áður. Þá væri einnig horft til ferils viðkomandi. „Þetta er sjálfstæð búseta og því viljum við ekki fá fólk með nein vandamál þarna inn,“ sagði Arnar Helgi og tiltók sérstaklega fíknivanda. Hann vísaði alfarið á tvo aðra stjórnarmeðlimi, þá Árna Geir Árnason og Rúnar Björn Herrara Þorkelsson, bróður Sunnu Elviru. Rétt er að taka fram að Arnar Helgi vissi ekki að fyrirspurn DV snerist um úthlutun íbúðarinnar til Sunnu Elviru.

Í samtali við DV sagðist Árni Geir ekki kannast við biðlista eftir íbúð hjá félaginu. Hann sagði að allar fyrirspurnir væru teknar fyrir og þær annaðhvort samþykktir eða þeim hafnað. „Sem stendur þá eru allar íbúðir fullar. Það er enginn biðlisti,“ sagði Árni Geir. Þá sagðist hann ekki kannast við að neitt ósætti væri vegna úthlutunnar íbúðarinnar til Sunnu Elviru.

Sömu sögu hafði Rúnar Björn að segja. „Ég kannast ekki við neinn biðlista og ég neita því að ég hafi komið nálægt þessari úthlutun. Ég sagði mig alveg frá þessu tiltekna máli,“ sagði Rúnar Björn. Hann benti á að samtökin væru að leigja út eina íbúð í fjölbýlishúsinu sem hægt væri að að losa með nokkuð skömmum fyrirvara ef einhver mænuskaddaður væri í brýnni þörf fyrir húsnæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga