Bandaríska leikkonan Cynthia Nixon, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Sex and the City, hyggst bjóða sig fram í embætti ríkisstjóra í New York. Nixon sem lék hina geðþekku Miröndu hefur safnað yfir sextíu og fimm þúsund meðmælaundirskriftum og er klár í kosningabaráttu.
Nixon sem ætlar sér að fella Mario Cuomo ríkisstjóra hefur verið afar dugleg við að safna undirskriftum en hún hefur nú safnað fjórum sinnum fleiri undirskriftum en hún þarf á að halda.
Cynthia Nixon er búsett ásamt eiginkonu sinni og börnum í New York-borg og hefur lengi látið til sín taka í stjórnmálum borgarinnar.