Sunna Elvira Þorkelsdóttir útskrifaðist í gær frá legudeild Grensás og er flutt í litla íbúð ásamt dóttur sinni. Frá þessu greindi Sunna í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Fjórir og hálfur mánuður er liðinn síðan hún lenti í slysi á Spáni þegar hún féll fram af svölum á heimili sínu. Sunna hlaut mænuskaða í slysinu og lamaðist. Hún lá lengi á sjúkrahúsi á Spáni en kom heim til Íslands fyrir tæpum tveimur mánuðum.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Sunna:
„Mig óraði ekki fyrir að ég gæti nokkurn tímann komist á svona góðan stað þegar ég vaknaði upp á gjörgæslu öll aum og ringluð, fann ekki fyrir fótunum og gat mig hvergi hreyft. Ég hefði að sjálfsögðu ekki getað þetta án stuðnings og hjálpar frá yndislegu foreldrum mínum og vinkonum.
Takk fyrir öll fallegu og uppörvandi skilaboðin, þið eruð öll yndisleg!“