fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Framkvæmdir í borginni í dag: Umferðin á þessum svæðum gæti orðið þung

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. júní 2018 08:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þessa dagana standa víða yfir framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu þar sem unnið er við að fræsa og malbika götur í umdæminu,“ segir í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook-síðu sinni.

Þar segir að í dag, ef veður leyfir, sé til dæmis gert ráð fyrir að Ægisíða, á milli Hofsvallagötu og Starhaga, verði lokuð af þessum sökum frá klukkan 9 og fram eftir degi. Þá er ráðgert að þrengja að umferð við Grandatorg við enda Hringbrautar (norður) af svipuðum ástæðum og eins er áætluð viðgerðarvinna í framhaldinu á Hringbraut frá Meistaravöllum að Melatorgi.

„Í dag stendur líka til að malbika Seljabraut í Breiðholti og loks má nefna að fyrirhugað er að malbika tvær akreinar á Reykjanesbraut frá hringtorgi við Arnarnesveg í átt að Vífilsstöðum. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga