„Búast má við hvassviðri eða stormi um landið austanvert fram yfir hádegi með snörpum vindhviðum við fjöll, víða yfir 30 m/s, en yfir 40 m/s á stöku stað. Ekkert ferðaveður fyrir bifreiðar sem taka á sig mikinn vind.“
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Er fólk beðið um að huga að lausum munum og sýna varkárni. Hætta er á að tjöld, garðhúsgögn og trampólín geti fokið. Þá er einnig búist við sandfoki.
Íslendingar halda því áfram að bíða eftir sumrinu.