Síðastliðinn föstudag var bíl Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogsbæjar, ólöglega lagt í bílastæði fatlaðra við bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar.
Stundin greinir frá þessu en tónlistarmaðurinn Einar Ágúst Víðisson vakti auk þess athygli á þessu í Facebook-hópnum Verst lagði bílinn.
Sekt við þessu nemur 20 þúsund krónum en laun Ármanns er 2.159.670 krónur á mánuði. Tuttugu þúsund krónur eru því dropi í hafi fyrir bæjarstjórann.