Ráðist var á mann í gær með hamri í Reykjanesbæ. Fjórir lögreglumenn ásamt tveimur sérsveitarmönnum Ríkislögreglustjóra voru kallaðir á staðinn og handtóku þeir árásarmanninn á staðnum. Að sögn lögreglu eru meiðsli þolanda ekki lífshættuleg en samkvæmt heimildum DV var mikið blóð á vettfangi árásanir. Búið er að yfirheyra árásarmanninn en Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki gefið upp hver ástæða árásinar var.