fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Guðni Th. skammaður fyrir syndir Ólafs Ragnars: „Að ná sér í eina með extra ananas“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. júní 2018 16:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson, hefur hlotið skammir innan Facebook-hópsins Verst lagði bílinn en þar var birt mynd af bíl forsetans lögðum ólöglega á gangstétt. Sá sem deildi myndinni skrifaði einfaldlega: „#ekkiminnforseti“.

Nokkrir í hópnum segja þetta lélega framkomu af forsetanum en þeir beina skömmum sínum af röngum forseta, því Guðni er alsaklaus að þessari framkomu. Sá sem skrifar innleggið upplýsir í þræðinum stuttu síðar að myndin hafi verið tekin í tíð Ólafs Ragnars Grímssonar. „Já þetta er gömul mynd. Þarna var Óli grís að ná sér í eina með extra ananas. Nei ég meinti bílstjórinn hans,“ segir maðurinn.

Ein kona segir farir sínar ekki sléttar af bílstjóra Ólafs Ragnars: „Ég veit ekki hvort Guðni sé með sömu bílstjóra en ÓRG var með ævintýralega lélega og tillitslausa bílstjóra í sinni tíð. Þegar ég bjó útá nesi reyndi maður helst að keyra út í kant og stoppa ef maður mætti þeim, því þeir keyrðu veeeeel yfir hámarkshraða og eignuðu sér veginn. En ég hef séð annaðhvort þessa mynd eða mjög svipaða frá því að hann var forseti.“

Örnólfur Thorsson forsetaritari staðfestir í samtali við DV að myndin sé gömul. „Þetta er allgömul mynd, kannski fimm til sex ára gömul,“ segir Örnólfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“
Fréttir
Í gær

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”