fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Atli Helgason fær ekki lögmannsréttindi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. júní 2018 15:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur synjað beiðni Atla Helgasonar, dæmds morðingja, um að endurheimta lögmannsréttindi sín. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, en með honum mátti Atli flytja mál fyrir dómi.

Atli var dæmdur í 16 ára fangelsi árið 2001 fyrir að hafa banað Einari Erni Birgissyni. Hann var einnig sviptur málflutningsréttindum. Óflekkað mannorð er meðal þeirra skilyrða sem fólk þarf að uppfylla til að hafa málflutningsréttindi. Þá kröfu uppfyllir Atli en hann fékk uppreist æru fyrir rúmlega tveimur árum síðan. Atli sótti þá um að fá lögmannsréttindin á nýjan leik en féll frá kröfu sinni eftir að Lögmannafélagið skilaði inn formlegri umsögn um kröfuna og lagðist gegn henni.

Sjá einnig: Sagan öll – Segja foreldra Einars hafa látist úr sorg – Sagði Atli allan sannleikann? – Bróðir Atla dó eftir eftirför lögreglu

DV fjallaði ítarlega um söguna alla af því þegar Atli myrti Einar Örn í maí. Aðstandendur Einars hafa sagt að Atli hafi aldrei sýnt minnstu iðrun. Birgir Örn Birgis faðir Einars sagði í viðtali árið 2016: „Hann hefur aldrei nokkurn tíma gert eitt eða neitt til að sýna iðrun. Mér finnst það bara vera í beinu framhaldi af því hversu útsmoginn hann var á meðan þetta var að ganga yfir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni