„Loksins fæ ég að hitta Marilyn.“
Hafnarboltakappinn Joe DiMaggio, mælti svo en hann var ástfanginn af Marilyn Monroe til dauðadags. Þau voru gift í níu mánuði árið 1954 og tóku upp samband aftur 1961 en Monroe lést ári síðar. DiMaggio skipulagði útförina. Hann lét senda tylft rósa þrisvar í viku á leiðið í tuttugu ár eftir andlát hennar.