fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Kanye borgaði níu milljónir fyrir mynd af baðherbergi Houston

Ritstjórn DV
Föstudaginn 25. maí 2018 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn Pusha T gaf það upp í viðtali nú í vikunni að Kanye West hafi borgað tæplega níu milljónir fyrir myndina sem prýðir umslag nýjustu plötu hans. Myndin er af baðherbergi söngkonunnar Whitney Houston og var tekin árið 2006. Á myndinni sést glitta í krakkpípu, hvítt duft og áfengi.

Myndin var tekin í leyfisleysi af ættingja Houston og var upphaflega birt í National Enquirer. Pusha T sagðist sjálfur ekki hafa verið til í að borga fjárhæðina en Kanye hafi verið harðákveðinn að myndin yrði að vera á plötuumslaginu. West er einn af framleiðendum plötunnar sem ber nafnið DAYTONA og kemur út í dag.

Whitney Houston lést árið 2012. Hún fannst látin í baðkari á Beverly Hilton hótelinu í Beverly Hills. Dánarorsökin samkvæmt réttameinafræðing var drukknun en hjartveiki og kókaínneysla voru einnig talin hafa haft áhrif.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi