fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Algengast að barn fæðist utan hjónabands á Íslandi

Auður Ösp
Föstudaginn 25. maí 2018 15:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frjósemi á Íslandi hefur verið með því mesta sem þekkist í Evrópu á síðustu árum en en nú er öldin önnur. Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 var minni en nokkru sinni áður. Þá hefur meðalaldur frumbyrja hækkað og er nú 27,8 ár. Sé horft til Evrópu var algengast að barn fæðist utan hjónabands á Íslandi en yfir helmingur þeirra barna sem fæddust á seinasta ári fæddust í óvígðri sambúð. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Árið 2017 fæddust 4.071 barn á Íslandi, sem er fjölgun frá árinu 2016 þegar 4.034 börn fæddust. Alls fæddust 2.112 drengir og 1.959 stúlkur, en það jafngildir 1.078 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið.

Árið 2017 var frjósemi íslenskra kvenna 1,71 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2016 var frjósemi 1,75 en það er næst lægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. Undanfarinn áratug hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Flest börn fæðast í Reykjavík

Eins og við má búast voru flest nýfædd börn í fyrra skrásett með lögheimili í Reykjavík (1.536), í Kópavogi (441) og í Hafnarfirði (360). Flestar fæðingar voru í ágúst (379) en fæstar í febrúar (278). Árið 2016 fæddust flest börn í september (403) og fæst í desember (283).

Meðalaldur mæðra hefur hækkað

Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður var. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldurinn hækkað og var 27,8 ár í fyrra. Algengasti barneignaaldurinn er á milli 25–29 ára. Á þessu aldursbili fæddust 108 börn á hverjar 1.000 konur í fyrra. Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu í fyrra var 5,9 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt miðað við þegar hún fór hæst á árabilinu 1961–1965, en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Til samanburðar var meðalaldur frumbyrja 29 ár í 28 löndum Evrópusambandsins árið 2016, yngstar voru frumbyrjur í Búlgaríu (26 ára) en elstar á Ítalíu (31 árs).

Tæplega 30 prósent barna fæðast innan hjónabands

Árið 2017 fæddust 28,8 ´prósent barna á Íslandi í hjónabandi. Rúmlega 56 prósent barna fæddust í óvígðri sambúð og 14,8% fæddust því utan sambúðar eða hjónabands. Af 28 löndum Evrópusambandsins fæðast um 40% barna utan hjónabands. Næstólíklegast, á eftir Íslandi, er að börn fæðist innan hjónabands í Frakklandi (59,7%), Slóveníu og Búlgaríu (58,6%). Til samanburðar fæðast varla börn utan hjónabands í Tyrklandi (2,9%) og það sama má segja um Grikkland (9,4%).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fór huldu höfði á Íslandi en eftirlýstur í Póllandi – Sagðist ekki geta farið í flugvél vegna höfuðhöggs

Fór huldu höfði á Íslandi en eftirlýstur í Póllandi – Sagðist ekki geta farið í flugvél vegna höfuðhöggs
Fréttir
Í gær

Ritstjóri Austurfréttar ánægður með árshátíðina dýru – „Ekki há upphæð fyrir fyrirtæki með tekjur upp á 52 milljarða króna“

Ritstjóri Austurfréttar ánægður með árshátíðina dýru – „Ekki há upphæð fyrir fyrirtæki með tekjur upp á 52 milljarða króna“