Ef marka má skoðanakannanir bendir ýmislegt til þess að Miðflokkurinn verði einn af sigurvegurum borgarstjórnarkosninganna sem fram undan eru. Þar hefur Vigdís Hauksdóttir farið í fararbroddi illvígra víkinga og vakið athygli fyrir kostulegar uppákomur.
Færri vita að nánir ættingjar Vigdísar eru í hörku kosningabaráttu með Framsóknarflokknum í tveimur kjördæmum. Það eru systkinin Sædís Karlsdóttir lögfræðingur, sem skipar 2. sæti á lista flokksins í Reykjavík, og Sverrir Kári Karlsson verkfræðingur, sem skipar 6. sæti á lista flokksins í Kópavogi. Vigdís er móðursystir þeirra.
Systkinin þykja bera af í glæsileika og má geta þess að Sverrir Kári var útnefndur Herra Ísland árið 2002. Eru flestir á því máli að þar séu komnir ættarlaukar Stóru-Reykjaættarinnar.