Sanna Magdalena Mörtudóttur, oddviti Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík, verður á Beinni línu á DV sjónvarp hér á DV.is kl. 11:15 í dag. Lesendur DV geta sent inn spurningar sem Sanna mun svara í beinni. Sanna verður í beinni á DV og Facebook-síðu DV, en DV nýtir Facebook-live.
Til að spyrja Sönnu geta lesendur sett spurningu í athugasemd á útsendinguna á Facebook eða í gengum tölvupóst, frett@dv.is
Fyrirkomulagið er á þá leið að útsending verður á DV.is og Facebooksíðu blaðsins. Þar geta lesendur varpað fram spurningum í beinni og Sanna mun svara eins mörgum og hægt er á rúmum hálftíma.
Sanna mætir kl. 11:15, hægt er að senda spurningar inn fyrirfram sem athugasemdir við þessa frétt eða í tölvupósti á frett@dv.is
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, verður svo á Beinni línu kl. 13:00 í dag. Hægt er að senda spurningar á Vigdísi fyrirfram sem athugasemdir við þessa frétt eða í tölvupósti á frett@dv.is