fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Jón Gnarr hefur ekkert í Bubba: „Ég geymdi 40 grömm af kóki í leðurjakka á stólbaki hjá tollurum”

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. maí 2018 15:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bubbi Morthens toppar Jón Gnarr auðveldlega í að geyma fíkniefni í fórum sínum, ef marka má nýja Twitter-færslu Bubba. Jón Gnarr greindi frá því í skemmtiþættinum Satt eða Logið á Stöð 2 á föstudaginn hann haft fíkniefni í fórum sínum vikum saman meðan hann var borgarstjóri.

Að vísu hefur Jón sagt þessa sögu áður, líkt og DV greindi frá síðasta sumar. Jón fann reglulega poka með kannabis í Hólavallagarði, gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu, og gleymdi að losa sig við þá meðan hann var borgarstjóri.

Bubbi segir að þetta sé vel gert hjá Jóni en hann geti toppað þetta. „Gnarr geymdi 20 g af grasi í úlpuvasa í tvær vikur. Vel gert. Ég geymdi 40 grömm af kóki í leðurjakka á stólbaki hjá tollurum í gömlu flugstöðinni Keflavík í 2 tíma. Ég drakk kaffi með þeim og labbaði með kókið út. Sævar vinur hélt þá að það væri búið að bösta mig. Hann náði í mig á skrifstofu þeirra,“ skrifar Bubbi.

Bubbi virðist hafa húmor fyrir þessu því hann deilir færslu grínistans Henrý Þór en hann skrifar: „Það er ekkert. Einar, frændi minn, geymdi spítt í skyrtuvasanum sínum meðan hann var í varðhaldi fyrir að vera svaka kall, og finnst það enn töff þó hann sé orðinn afi“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“