Michael hefur búið í herbergi síðastliðin átta ár hjá foreldrum sínum, þeim Christinu og Mark Rotondo, og mælirinn fylltist þegar ítrekanir þeirra voru hunsaðar. Í úrskurði dómara segir að sonurinn neyðist nú til þess að verða að óskum húsnæðiseigenda, en Michael segir sjálfur í samtali við fréttamiðilinn CNN að hann hafi talið sig eiga rétt að sex mánaða uppsagnarfresti.
Michael tekur fram að foreldrar hans gáfu engin merki áður um sameiginlega ábyrgð á kostnaði heimilisins né kröfur um aðstoð við húsverkin. „Það eina sem ég vildi var rausnarlegur tímarammi til þess að flytja út, með tillit til þess að ég var ekki reiðubúinn til þess að standa á eigin fótum á þeim tíma sem áminningarnar bárust,“ segir Michael.
Dómari hafnaði þeirri beiðni um að virða umræddan uppsagnarfest en Michael hyggst áfrýja málið og segir að niðurstaðan sé „hreint fáránleg.“