Eitt þeirra mörgu trampolína sem fuku af stað í hvassviðrinu á Suðurnesjum um helgina lenti á tveimur bílum og skemmdi þá talsvert. Lögreglan á Suðurnesjum hafði á tímabili í nógu að snúast við að hefta för þessara fljúgandi muna og koma þeim tryggilega fyrir svo ekki hlytust frekari óhöpp af þeirra völdum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þar segir einnig af ökumanni á vespu sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrrinótt. Sá reyndist hafa ýmislegt á samviskunni. Hann var grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur og þá var hann með kannabisefni í fórum sínum.
Þá voru fáeinir ökumenn til viðbótar teknir úr umferð um helgina vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur.
Loks var ökumaður kærður fyrir að aka um og nota ekki öryggisbúnað fyrir 18 mánaða barn sem sat í fangi farþega í bifreiðinni.