Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og oddviti Samfylkingarinnar, verður í beinni útsendingu hér á DV.is í DV sjónvarp. kl. 15:00 í dag. Lesendur DV geta sent inn spurningar sem Dagur mun svara í beinni. Dagur verður í beinni á DV og Facebook-síðu DV, en líkt og með Eyþór Arnalds síðastliðinn föstudag mun DV nýta Facebook-live.
Til að spyrja Dag geta lesendur sett spurningu í athugasemd á útsendinguna á Facebook eða í gengum tölvupóst, frett@dv.is
Fyrirkomulagið er á þá leið að útsending verður á DV.is og Facebooksíðu blaðsins. Þar geta lesendur varpað fram spurningum í beinni og Dagur mun svara eins mörgum og hægt er á rúmum hálftíma.
Eins og áður segir mætir Dagur kl. 15:00, hægt er að senda spurningar inn fyrirfram sem athugasemdir við þessa frétt eða í tölvupósti á frett@dv.is