fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Dagur vill ananas á pizzu: Þetta er pizza borgarstjórans

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 22. maí 2018 17:20

Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mætti á Beina línu DV í dag. Þar fengu lesendur að spyrja hann út í allt milli himins og jarðar, fyrir utan hin ýmsu stefnumál í borginni var Dagur spurður hvort hann væri sáttur við ananas á pizzu. Eins og frægt er orðið þá lýsti Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands því yfir að ananas ætti ekki heima á pizzu og rötuðu þau ummæli í heimsfréttirnar.

Dagur er ekki á sama máli og forsetinn:

„Ég ber mikla virðingu fyrir forsetanum, en mér finnst ananas gott á pizzu í vissum blöndum,“ sagði Dagur. Í kjölfarið kom hann með samsetningu á pizzu sem hann sagði alla þurfa að prófa og er líklegt til að enda á matseðli pizzustaða í borginni ef Dagur nær endurkjöri á laugardaginn:

„Pepperoni, gráðaostur og ananas. Prófa það. Það er mjög gott.“

Hann tók þó fram að þetta væri ekki pizza sem hentaði öllum tilefnum, hann þurfi að vera í rétta skapinu.

Aðspurður um pizzu með skinku og ananas sagði Dagur:

„Já, en mér finnst það aðeins of litlaust.“

Hér má sjá Dag á Beinni línu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis