fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Halla er á leið til Amsterdam: „Hvað ef annað okkar fílar þetta en hitt ekki?“

Ragnheiður Eiríksdóttir
Mánudaginn 21. maí 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sæl, Ragga. Ég er rúmlega fertug og það er ekki í raun fyrr en núna að ég er farin að leyfa mér að vera ég sjálf í kynlífi. Ég held að ég eigi meira inni, ef svo má að orði komast. Þess vegna ætla ég að koma til þín á námskeiðið Konur og kynlíf á þessu ári.

En að málinu: Ég og maðurinn minn stundum gott og fjölbreytt kynlíf þó svo að inn á milli komi daufir kaflar. Ég er búin að lesa greinarnar þínar um swing og er nokkuð spennt fyrir heimsókn í slíkan klúbb. Það vill svo vel til að ég og maðurinn minn erum að fara til Amsterdam og við erum byrjuð að ræða hvort við eigum að stíga þetta skref. Okkur finnst margt spennandi í þessum efnum en líka eitt og annað sem hræðir okkur, enda er þetta skref út fyrir þægindarammann. Núna eftir að ég las skrifin þín færist ég nær hugmyndinni, sérstaklega vegna þess að hingað til hef ég ekki vitað hvert við ættum að leita en ég ímyndaði mér líka að þetta væri mögulega sóðalegt.

  1. Ef við förum á swing-klúbb verðum við þá að stunda kynlíf með öðrum? Megum við vera bara tvö saman í kynlífi eða þarf að þiggja boð eða bjóða öðrum? Má kannski láta duga bara að horfa á í fyrsta sinn?
  2. Eru allir að drekka áfengi á slíkum klúbbi eða er fólk edrú? Maðurinn minn smakkar það stundum lítillega en ég drekk ekki.
  3. Mæti ég snyrtilega klædd í fallegum undirfötum og er svo bara á þeim þegar sá tími kemur?
  4. Hvað ef annað okkar er að fíla þetta en hitt ekki? Eru þá líkur á að þetta geti skaðað samband okkar?
  5. Þurfum við ekki að vera búin að ræða okkar á milli hvað er í boði og hvað má ganga langt eða gerast hlutirnir bara?
  6. Hverjar eru líkurnar á að smitast af kynsjúkdómi eða húðsjúkdómi og þarf ég að koma með verjur og eitthvað undir mig eða er allt til alls á staðnum?

Kveðja, Halla.

Kæra Halla

Takk fyrir frábærar spurningar og vertu velkomin á námskeið hjá mér. Næstu dagsetningar fyrir Konur og kynlíf verða auglýstar í ágúst.

Það er greinilegt að áhugi á lífsstílnum leynist víða meðal íslenskra góðborgara. Fjöldi Íslendinga á swing-samfélagsvefnum SDC hefur rokið upp úr öllu valdi.

  1. Þið verðið hvorki eitt né neitt þó að þið stígið inn í klúbb. Nema að fylgja reglum klúbbsins auðvitað. Best er að kynna sér reglur hvers staðar fyrir sig, en þær er að finna á heimasíðum klúbbanna. Almennt má segja að reglurnar séu svipaðar; ákveðins klæðnaðar er krafist, vímuefni umfram áfengi eru ekki leyfð, gestir eru beðnir að ganga vel um, skilja símana eftir í skápum í búningsklefa, já og auðvitað viðhafa kurteisi í samskiptum.

Þið ráðið alveg með hverjum þið stundið kynlíf og getið afþakkað allt sem stendur til boða. Fólk sem stundar þessa senu er vant því að fá neitun og móðgast ekki. Það er ekkert að því að mæta á svæðið eingöngu til að upplifa stemninguna og kynorkuna í loftinu, fá að ganga um meðal fáklæddra og eiga samskipti við fólk. Pör mæta líka til að stunda kynlíf saman, jafnvel með áhorfendur, eða meðal annarra para sem líka eru að stunda kynlíf. Þetta fer allt eftir smekk og því sem ykkur finnst þægilegt.

Pör sem vilja stunda kynlíf með öðrum hafa ýmsa möguleika til að láta það rætast. Margir kunna best við að byrja á spjalli við barinn, eða í setustofu, ef vel fer á með fólki má svo stinga upp á að færa partíið yfir á leiksvæðið. Ef þið eruð tvö í leik á opnu svæði og sjáið álitlegt par nálgast með bros á vör og lostafullt blik í augum gæti verið viðeigandi að senda þeim spurnarbendingu með höfði eða höndum, bjóða þeim þátttöku.

Ef þið sjáið ómótstæðilegt par í leik og langar að taka þátt en náið ekki augnsambandi, má tylla sér á rúmbríkina og strjúka handarbaki spurnarlega um læri eða upphandlegg. Ef svarað er með brosi, eða kolli er kinkað, er málið að kasta sér í leikinn. Ef höndin þín er hins vegar færð í burtu af líkamshlutanum þýðir það venjulega að nærveru þinnar í leiknum sé ekki óskað.

Gestir nota bæði tal og samskipti án orða til að tjá sig, en sú meginregla gildir að þú dembir þér ekki í hrúgu nakinna, eða stingur líkamshluta inn í líkamsop án þess að leyfi hafi verið veitt.

  1. Klúbbar af þessu tagi eru yfirleitt ósköp svipaðir öðrum dansklúbbum og diskóbörum. Fyrir utan kynlífsherbergin, búningsherbergin og klæðaburð fólksins. Dansgólfið er á sínum stað, barinn, og stundum eru veitingar í boði, sófar og svæði til að eiga samskipti við aðra gesti. Sumir gestir drekka, aðrir ekki.
  2. Flestir staðir eru með klæðareglur sem taka gildi þegar klukkan slær eitthvað ákveðið. Í Fata morgana í Hollandi er leyfilegt að vera í borgaralegum klæðnaði til klukkan 21 á föstudagskvöldum, eftir það fækkar fólk fötum og klæðist einhverju efnisminna. Konur eru gjarnan í nærfötum og karlar á sæmilega útlítandi nærbuxum. Sumir velja líka að vera kviknaktir og það má!
  3. Frábær spurning! Það getur vel verið að annað ykkar muni fíla sig í botn en hitt ekki. Þegar pör fara út í svona áhugamál saman þurfa samskipti að vera skýr og opin. Það er ekki gott að annað ykkar upplifi óþægilega pressu. Meðal annars þess vegna er best að fyrsta heimsókn ykkar í klúbb sé án væntinga, að þið farið til að skoða, upplifa stemninguna og kanna hvernig ykkur líður í umhverfinu.
  4. Ég ráðlegg ykkur eindregið að vera búin að ræða saman um mögulegar aðstæður sem geta skapast. Í fyrstu upplifun af kynlífi með aukaleikurum getið þið ekki mögulega vitað hvernig nákvæmlega ykkur mun líða við að sjá makann þiggja munngælur frá einhverjum öðrum. Gott er að þið búið til ramma eða samkomulag ykkar á milli. Leiðirnar eru ótalmargar – þið gætuð ákveðið að kelerí við aðra sé í lagi, en ekki samfarir. Kannski finnast ykkur munngælur í lagi en ekki kossar. Mögulega viljið þið vera saman allan tímann í klúbbnum og sjá hinn aðilann njóta, frekar en að skipta liði. Best er að hafa samskiptin opin – enda er líklegt að þið munið endurskoða fyrirkomulagið ykkar reglulega.
  5. Í flestum klúbbum sem ég hef heimsótt eru smokkar og handklæði til nota fyrir gesti. Ég mundi þó kanna þetta á heimasíðu hvers klúbbs fyrir sig. Einu sinni hef ég komið á klúbb þar sem bréfþurrkur voru í boði en ekki handklæði – það var ekki nógu lekkert. Í klúbbum er líka hægt að komast í steypibað milli atriða, og almennt hefur mér sýnst fólk ljómandi hreinlegt.

Þið setjið ykkar reglur um smokka, hvort þið notið þá í samförum eða líka við munngælur. Eins og þú eflaust veist getur þú smitast af herpes þrátt fyrir smokkanotkun – þá er ágætt að muna eftir því að flestir fullorðnir einstaklingar bera annaðhvort Herpes 1 eða 2 veiruna í sér, þó að margir hafi aldrei fengið einkenni. Að mínu mati mætti alveg tóna niður dramatíkina í umræðu um kynfæraherpes – óþægilegt vissulega í þeim tilfellum sem útbrot birtast, en við fyrstu einkenni má taka lyf sem stytta óþægindatímann, svo að þetta þarf ekki að vera mikið meira mál en að fá ennisholubólgu.

Þið eruð fullorðið fólk og þurfið að vega og meta þetta sjálf!

Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni, Hamraborg 11 raggaeiriks@gmail.comwww.raggaeiriks.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.