Sindri Þór Stefánsson, sem yfirgaf fangelsið á Sogni og lýst var eftir um allan heim, er kominn aftur til Íslands. Hann opnaði sig upp á gátt í viðtali við Harmageddon og hélt þar fram að hann hefði verið frjáls. Yfirvöld kröfðust gæsluvarðhalds yfir Sindra en dómari ákvað að taka sér sólarhring til að hugsa málið. Var farið með Sindra upp á Sogn og honum greint frá því að yfirgæfi hann fangelsið yrði hann handtekinn. Sindri sagði sjálfur í Harmageddon að til að mega halda honum samkvæmt lögum hefði átt að handtaka Sindra og vista hann í sólarhring í fangelsi. „Það er borðleggjandi að ég var frjáls minna ferða.“ Má færa rök fyrir því að fangelsismálayfirvöld hafi ákveðið að sýna mýkri hlið og bjóða Sindra að vera á Sogni fram að þeim tíma í stað þess að kúldrast í ömurlegum klefa á Hverfisgötu.
Þá sagði Sindri að það hefði komið honum á óvart að vera kallaður strokufangi og bjóst ekki við að fjallað yrði um hann í fjölmiðlum. Lögregla lýsti eftir Sindra þar sem þeir höfðu greint honum frá því að ef hann færi frá Sogni yrði hann handtekinn og lýst eftir honum. Það stóð eins og stafur á bók og ósköp eðlilegt að fjölmiðlar fjölluðu um ferðalag hans með forsætisráðherra til Svíþjóðar. En Sindri, sem þykir með eindæmum gáfaður og snjall og hefur verið hampað af stórum hluta þjóðarinnar, fékk óvæntar gleðifréttir í vikunni þegar dróni sem hann hafði lýst eftir kom í leitirnar. DV fékk ábendingu um undarleg hnit á þeim tíma sem Sindra var leitað og voru þau sögð tengjast honum. Töldu sumir að hnitin myndu vísa á tölvurnar sem lýst hafði verið eftir. En um flökkusögu var að ræða, ein af mörgum um þennan unga vaska mann. Seinna birti konan hans mynd í grúppu þar sem hún auglýsti eftir svörtum afar verðmætum dróna. Í grúppunni Drónar á Íslandi birti einn meðlimur mynd af löskuðum dróna og vonaði að eigandinn myndi gefa sig fram en á drónanum var hágæðamyndavél. Sindri svaraði kallinu og kvaðst viss um að hann ætti gripinn dýrmæta. „Ég var að æfa næturflug með nýju XT cameruna þegar ég missti GPS samband. […] Það var leitað alla nóttina en svo byrjaði að snjóa og snjóaði næstu daga. Ég gafst upp þegar ég var kominn með snjóinn upp í mitti.“ Kvaðst Sindri hafa tilkynnt til lögreglu að hann hefði tapað drónanum.
DV hafði samband við Sindra til að heyra frekar af þessum gleðitíðindum. Sindri vildi ekki tjá sig við DV og neitaði að hann ætti drónann eða hefði átt í samskiptum við fólk í grúppunni og ítrekaði það þrátt fyrir að honum væri greint frá því að DV hefði skjáskot af þeim samræðum. „Nei, það var ekki ég. Þetta hefur verið einhver annar,“ sagði Sindri að lokum, en vonandi kemur Sindri drónanum aftur á flug, því ekki má hann taka á loft sjálfur, enda í farbanni.