„Við erum til að mynda með Range Rover, Porsche og stóra Benza. Í raun allt milli himins og jarðar – frá rusli í fokdýra bíla,“ segir Valdimar Haraldsson, deildarstjóri rekstrardeildar Vöku, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Að því er fram kemur í frétt Morgunblaðsins hefur það færst í aukana að ökutæki séu skilin eftir um alla borg. Þetta eru allskonar bílar; númerslausir og á númerum, dýrir lúxusbílar og bílar sem eru komnir á síðasta snúning, ef svo má segja.
„Það hefur færst mjög í vöxt að fólk skilji bíla sína eftir hér og þar, bæði á númerum og án. Portið okkar er í raun kjaftfullt af þessum bílum,“ segir Valdimar en í fréttinni kemur fram að í geymsluporti Vöku sé nú að finna yfir 50 bíla sem enginn vill kannast við að eiga.
„Oft tekst ekki að ná í eigendur, þeir eru ekki með skráða síma eða bréf frá okkur eru endursend,“ segir Vilhjálmur í fréttinni. Númerslausir bílar eru geymdir hjá Vöku í tvo mánuði áður en þeir eru boðnir upp eða þeim fargað.