fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Elfa miður sín eftir dauða Megasar: „Þetta er dýraníð af verstu gráðu“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 15:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir þrettán köttum og einum hundi á Austurlandi á síðustu tveimur árum.

Elfa Sigurðardóttir syrgir nú köttinn Megas sem drapst úr frostlögseitrun. Elfa segir í samtali við RÚV að hann hafi verið geldur og haldið sig nálægt heimili sínu á Egilstöðum. Nýrun á Megasi voru rannsökuð á Keldum og staðfest að hann hafi drepist eftir að hann innbirti frostlög. Díana Divilekova dýralæknir á Egilsstöðum segir að frá febrúar 2016 hafi komið til hennar 13 kettir og einn hundur af Austurlandi þar sem grunur leikur á um eitrun, ekki hafi verið um að ræða frostlög í öllum tilvikum, heldur einnig músaeitur og annað eitur.

Elfa segir að hún skilji að fólk vilji ekki hafa breimandi kettir í garðinum eða ketti sem skíti út um allt, en að eitra fyrir þeim sé ekki lausnin: „Þetta er dýraníð af verstu gráðu að eitra fyrir dýrum sem hafa ekkert gert af sér. Það er frekar að beina þessu til yfirvalda sem eru kannski ekki að sinna því að kettir séu geldir eða eigendur sektaðir eða eitthvað.“

Eitrað með fiskstykki í Hveragerði

Í ítarlegri umfjöllun DV fyrr á þessu ári um kattadráp í Hveragerði kom fram að allt að fimmtíu kettir hafi verið drepnir með eitri eða eru horfnir á Suðurlandi, á svæði sem nær frá Sandgerði til Selfoss. Margt benti til að ekki væri allt með felldu, en það sem skar Hveragerði úr var að þar fannst fiskstykki sem búið var að eitra með frostlegi og koma fyrir þar sem kettir og önnur dýr eiga auðvelt með að finna það og éta.

Sjá einnig: Á hælum kattamorðingjans í Hveragerði

Hægt er að bjarga köttum sem hafa innbirt frostlög, samkvæmt dýraspítalanum í Garðabæ á dýrið möguleika á að lifa ef það kemur innan 3 til 4 tíma eftir að hafa innbyrt frostlög eða frostlagarmengaða fæðu. Eftir það er það of seint og dýrið fer í bráða nýrnabilun sem er óafturkræf og líður miklar kvalir. Fyrstu 3 tímana eftir að kötturinn hefur innbyrt frostlög er mögulegt að greina sérstaka kristalla í þvagi sem eru sterk vísbending um frostlagareitrun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala