fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Baldur niðurlægður: „Ég hringdi í konuna mína, í uppnámi“

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 10:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Guðmundsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, greinir frá leiðinlegri lífsreynslu í Bakþanka blaðsins í dag. Hann segist einfaldlega hafa misst reisnina eftir að nýi jeppinn hans fór ekki í gang og hann þurfti að biðja samstarfsmann um start.

„Fyrir viku keypti ég jeppa, þvert á Bakþanka febrúarmánaðar. Mig langaði í bíl til að sinna áhugamálum mínum og myndi mæta tilfinnanlegum – og sennilega tilfinningalegum líka – skorti á stærri dekkjum. Yfirmaður minn kallaði þetta „midlife crisis“, í tveggja manna tali sem ég heyrði óvart. Bílinn keypti ég á miðvikudaginn, fyrir viku. Klukkan fjögur síðdegis kláraðist vinnudagurinn loksins og ég settist við stýrið, spenntur. Ég setti lykilinn í svissinn og sneri. Undarlegt. Ég sneri aftur. Þar sem ég mændi tómu augnaráði á ljóslaust mælaborðið rann það upp fyrir mér að nýi bíllinn minn færi ekki í gang,“ segir Baldur.

Baldur segist hafa setið undir stýri drykklanga stund. „Ég sneri þriðja sinni en viðbragðið undir húddinu varð jafnvel enn máttlausara. Ég hringdi í konuna mína, í uppnámi, og sagði að hún yrði að stökkva heim í strætó og sækja börnin. Það var erfitt símtal, hafandi eytt mánuðum í að sannfæra hana um að það væri góð hugmynd að eignast tíu ára Cruiser,“ segir Baldur.

Hann segir að það hafi þó verið enn verra að fara með skottið á milli lappanna aftur inn á vinnustað sinn. „Þau voru enn þyngri, þrepin upp á fjórðu hæð í vinnunni, enda hafði ég stært mig af nýja jeppanum allan daginn. Ég vatt mér að vinnufélaga og spurði í hálfum hljóðum. „Áttu nokkuð startkapla? Það er bíll hérna úti sem fer ekki í gang.“ Ég vonaði að úr þessu yrði ekki sena. „Ha!? Fer nýi bíllinn ekki í gang!?“ var þá hrópað, svo undir tók á vinnustaðnum og vonir mínar um að halda snefil af mannlegri reisn urðu að engu. Ég varð að athlægi. Eftir töluverða leit og mikið grín fann ég bjargvættinn. Sessunautur minn, reynslumikill bensínsali af gamla skólanum, gaf mér start og annaðist um leið svolitla sálgæslu. Í dag fæ ég bílinn aftur úr viðgerð – og reisnina vonandi með.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“
Fréttir
Í gær

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur
Fréttir
Í gær

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Í gær

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips
Fréttir
Í gær

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband