Guns N‘Roses var stofnuð í Los Angeles í Kaliforníu 1985 og hefur selt rúmlega 100 milljón plötur á ferli sínum. Tónleikarnir á Laugardalsvelli verða þeir síðustu yfirstandandi hljómleikaferð sveitarinnar. Með hljómsveitinni kemur mikill búnaður en sviðið verður flutt inn sem og ljósabúnaður og hljóðkerfið. Sviðið er 65 metra breitt með risaskjám á hliðunum. Sérstakt gólf verður lagt yfir grasið á Laugardalsvelli til að vernda völlinn fyrir álagi.
35 gámar verða fluttir til landsins vegna tónleikanna. Um 150 manns koma með hljómsveitinni til landsins til að sjá um uppsetningu búnaðarins ásamt íslensku framleiðsluteymi.
Axl Rose, söngvari, og gítarleikarinn Slash hafa ekki alltaf átt skap saman og ýmislegt hefur gengið á í sögu hljómsveitarinnar. Fyrir tveimur árum var hins vegar tilkynnt að Slash væri genginn til liðs við hljómsveitina á nýjan leik og í kjölfarið var hún aðalnúmerið á Coachella hátíðinni í Bandaríkjunum 2016.