fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Styrmir þurfti að flytja frá Íslandi til Spánar til að geta lifað mannsæmandi lífi

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 23. apríl 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Guðlaugsson stóð frammi fyrir tveimur valkostum ekki alls fyrir löngu; að draga sig í hlé frá samfélaginu og láta óréttlætið yfir sig ganga eða vekja athygli á stöðunni og berjast fyrir réttlæti. Styrmir valdi seinni kostinn en hann hefur í vetur haldið til á Spáni.

Efnahagslegur flóttamaður

„Ég er einn þeirra fjölmörgu íslensku öryrkja sem mætti kalla „efnahagslega flóttamenn“ á Spáni. Í vetur hef ég haldið til í Málaga og nágrenni og í fyrsta sinnsíðan ég veiktist árið 2005 finnst mér ég lifa mannsæmandi lífi án þess að hafa nagandi áhyggjur af næstu mánaðamótum. Um leið og ég hlakka til að koma heim aftur núna í maí kvíði ég afkomu minni því að framfærslan sem mér er skömmtuð dugar ekki til á Íslandi, og langt frá því,“ segir Styrmir í pistli á Facebook. Hann er í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn í Reykjavík fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.

„Fyrstu mánuði síðasta árs velti ég mikið fyrir mér stöðu minni og hvort ég gæti með einhverju móti hafið mig upp úr fátækt og basli sem verið hefur veruleiki mitt allt of lengi – þrátt fyrir dyggan stuðning fjölskyldu, frændgarðs og vina – og stefndi bara í að versna. Það er hægt að búa við að vera blankur tímabundið en langvarandi fátækt er allt annað og erfiðara hlutskipti,“ segir Styrmir í færslunni.

Sá ekki fram á að geta leyst út lyf

Hann nefnir að á þessum tímapunkti hafi hann ekki leyst lyf sín út um hríð. Þá sá hann ekki fram á að eiga fyrir læknisheimsókn sem var framundan. Styrmir segir að hvort tveggja hafi mátt rekja til ákvarðana stjórnvalda.

„Annars vegar um miklu meiri skerðingar en áður vegna atvinnuþátttöku og hins vegar breytinga á greiðsluþátttöku vegna heilbrigðisþjónustu. Auk þess ýkti nýtt húsnæðisbótakerfi enn skerðingarnar þó að nýlega hafi verstu agnúarnir verið sniðnir af því gagnvart okkur leigjendum. Sjálfsagt hefði ég getað forgangsraðað betur, lifað einfaldara, dyggðugra og fábrotnara lífi, en það eru takmörk fyrir því,“ segir hann og talar svo um valkostina tvo sem hann stóð framm fyrir; láta óréttlætið yfir sig ganga eða berjast fyrir réttlæti.

Vildi ekki vera í hlutverki fórnarlambs

„Þá gerði ég upp við mig að ég vildi ekki taka að mér hlutverk fórnarlambsins. Ekki síst þriggja sona minna vegna ákvað ég frekar að reyna að leggja það sem ég get af mörkum í baráttunni fyrir betra og réttlátara samfélagi,“ segir Styrmir sem mætti á stofnfund Sósíalistaflokksins í fyrra. Í haust ákvað hann að skrapa saman fyrir farseðli aðra leiðina til Spánar og hann virðist ekki sjá eftir því. Með því að fara var hann líka að lýsa yfir og segja sjálfum sé og öðrum að hann ætti betra skilið, að fá að lifa betur um skeið.

„Núna er málum hagað þannig að af hverjum 50.000 kr. sem öryrki í svipaðri stöðu og ég gæti unnið sér inn koma aðeins 10.000 kr. í hans hlut vegna skerðinga. Ég hef alltaf getað unnið svolítið við textagerð af ýmsu tagi þegar þunglyndið og kvíðinn taka ekki yfir líf mitt, enda starfaði ég lengi við blaðamennsku og útgáfu. En frá og með ársbyrjun 2017 get ég einfaldlega ekki með nokkru móti bætt kjör mín – það er mér bannað að gera. Strípaðar bætur duga einfaldlega ekki til framfærslu. Sá sem á ekki neitt og hefur úr 240.000 kr. að spila á mánuði er fastur í gildru – og sú gildra getur verið banvæn.“

Framlagið metið til einskis?

Styrmir spyr í pistlinum hvernig það getur verið hagkvæmt fyrir samfélagið að hann hafi sama og ekkert upp úr því að reyna að bæta kjör sín aðeins,  honum og samfélaginu til góða. „Framlag mitt er þá einskis metið. Ég er ekki að tala um að ég geti verið í fullri vinnu og fengið bætur. Málið snýst um að geta örlítið bætt kjör sín til þess einfaldlega að lifa af án þess að vera upp á aðra kominn. Það er nefnilega sama hve hugurinn að baki er góður, það skekkir samskipti fólks ef annar er alltaf í hlutverki þiggjandans en hinn veitandans og er óréttlátt gagnvart báðum.“

Styrmir segir að hlutskipti öryrkja séu honum vissulega hugleikin, en einnig aðrir hópar og hvernig þeir eru leiknir af þeim sem hafa völdin og peningana í samfélaginu – það sem hann kallar, „fámennum hópi sem er að eignast allt og lifir af arðinum á striti annarra“.

Styrmir segir að lokum að það þurfi að breyta kerfunum og stofnunum samfélagsins þannig að þau þjóni almenningi en ekki fyrst og fremst þeim fáu ríku.

„Kerfin þurfa svo að vinna betur saman sem er aldeilis ekki raunin í öllum tilvikum. Dæmi um það er að skömmu eftir hrun voru bætur öryrkja hækkaðar um að mig minnir 13 þúsund krónur. Næstu mánaðamót á eftir hækkaði leigan sem ég greiði hjá Félagsbústöðum svo skeikaði minna en þúsundkalli. Nú ætlum við öryrkjar, leigjendur, innflytjendur og láglaunafólk að komast að borðinu. Þetta eru hópar sem reiða sig á að velferðarkerfi bæði ríkis og sveitarfélaga sé öflugt og sanngjarnt og borgin sé ekki sá láglaunavinnustaður sem raunin er. Við viljum fá að hafa okkar að segja þegar ákvarðanir eru teknar um lífsskilyrði okkar og þróun borgarinnar, líka Hina Reykjavík þar sem við eigum heima en fæstir hinna heimsækja. Það getur vel verið að Íslendingar hafi það að meðaltali gott þó að ég efist um það. Manneskjan er heldur ekki meðaltal einhvers. Einstaklingar eru ekki bara stak í menginu heldur fólk af holdi og blóði. Við skulu muna það.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus
Fréttir
Í gær

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“