Um klukkan 18.30 í gær var tilkynnt um líkamsárás við Sólheima. Þar voru fimm ungmenni, sem öll voru í annarlegu ástandi, handtekin og vistuð í fangageymslu. Þau eru grunuð um að hafa gengið í skrokk á árásarþola sem var með áverka á höfði og víðar.
Ekki er vitað nánar um meiðsl hans.