Kaupaukar hjá starfsmönnum fjármálafyrirtækja hér á landi hafa lengi verið þyrnir í augum almennings, sérstaklega hefur viðhorf til þeirra verið neikvætt eftir hrun. Samtök sparifjáreigenda heldur núna fundarröð undir yfirskriftinni Aldrei aftur í tilefni að tíu ár eru liðin frá bankahruninu.
Annar fundurinn í röðinni verður haldinn næstkomandi þriðjudag í fundarsal Öskju (stofu 132) í Háskóla Íslands, og hefst kl. 12 á hádegi.
Frummælendur eru Benedikt Jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra og Katrín Ólafsdóttir lektor í vinnumarkaðshagfræði. Vilhjálmur Bjarnason stýrir fundinum.
Í fundarröðinni er meðal annars til umræðu skýrsla sem Talnakönnun hefur unnið fyrir Samtök sparifjáreigenda um kaupaauka. Bolli Héðinsson, formaður Samtaka sparifjáreigenda, segir um skýrsluna:
„Um réttmæti kaupauka og kaupaukakerfa hafa verið skrifaðar lærðar greinar og fjöldi rannsókna verið gerður á hvort og hverju þau breyta í rekstri fyrirtækja. Á Íslandi hefur tiltölulega lítið verið fjallað um kosti og galla kaupaukakerfa. Þessi rannsókn Samtaka sparifjáreigenda er viðleitni til að fjalla um þá á hlutlægan hátt.“
Úrdrátt úr ræðu Bolla frá fyrsta fundi raðarinnar má lesa hér