fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Borgin mín: „Hjartað sló á Nørrebro“

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 22. apríl 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir, sem er betur þekkt sem Ragga Nagli, ætlaði aldrei að flytja til Kaupmannahafnar. Örlögin höguðu því þó þannig að þar hefur hún búið ásamt eiginmanni sínum síðastliðin níu ár og eru þau síður en svo á heimleið. Við hjónin erum kreppuflóttamenn. Við fluttum út korteri eftir kreppu árið 2009 í kjölfar þess að við urðum bæði atvinnulaus. Ég ætlaði aldrei að flytja til Köben. Ég ákvað þó að gefa þessu séns í nokkra mánuði eftir áróðursræðu frá karlinum. Við ákváðum bara að pakka ofan í tösku, leigðum út íbúðina og vorum komin út þremur mánuðum seinna, eða í janúar 2009. Ég var búin að búa hérna í viku þegar ég vissi að ég vildi aldrei flytja héðan,“ segir Ragga, sem deilir sínum uppáhaldsstöðum í Kaupmannahöfn með lesendum DV.
Ástæðan fyrir því að Ragga heillaðist af Kaupmannahöfn var ekki síst lífsmynstrið ytra sem er talsvert ólíkt því sem hún átti að venjast á Íslandi. „Það er allt annað tempó á lífinu hérna og mun minni streita og kapphlaup við tímann eins og á Íslandi. Hjartslátturinn og hvíldarpúlsinn er mun lægri hér. Ég kann að meta litlu hlutina hérna og hef lært mikið af Dönum eins og nægjusemi og sparsemi. Hér er ekki sama lífsgæðakapphlaupið enda hef ég ekki hugmynd um hvaða innanstokksmunir eru í tísku. Ég læt mér nægja einn vasa og tvo kertastjaka,“ segir Ragga. Þá kann hún vel að meta umhverfisvitund Dana sem er mjög mikil. „Ég lærði fljótt að taka með mér taupoka út í búð, endurvinna allt rusl og nota eigið vöðvaafl á hjólfáki til að koma mér milli staða,“ segir Ragga. Þá sjaldan að um sé að ræða ferð sem tekur meira en hálftíma á hjóli eða veðrið viðurstyggð þá hoppar hún stundum upp í lest eða strætó. „Við höfum því enga þörf fyrir að eiga bíl en við höfum stundum leigt okkur bíl til að fara út úr bænum,“ segir Ragga.

Hjartað slær á Nørrebro

Þau hjónin hafa búið í flestum hverfum Kaupmannahafnar á þessum níu árum en ákváðu loks að kaupa sér íbúð á Nørrebro. „Hér sló alltaf hjartað. Þetta hverfi er í mikilli sókn og er mjög vinsælt með ungs fólks. Hér er gríðarleg fjölmenning og kynþáttafordómar hverfandi,“ segir Ragga. Þessum suðupotti menningar hafa þó fylgt ýmis vandamál. „Það hafa verið vandamál með gengjastríð og fíkniefnasölu en lögreglan hefur náð ótrúlegum árangri í að stemma stigu við því,“ segir Ragga. Þó að hún sé að eigin sögn „urlandi“ sátt við sinn sess  á Nørrebro þá gæti hún einnig vel hugsað sér að búa á Stefansgade eða í kringum St. Hans Torv og Elmegade en þá vegna mannlífsins þar á góðviðrisdögum.
Frá Nørrebro. Ragga Nagli vill hvergi annars staðar vera í Kaupmannahöfn.
DV kom ekki að tómum kofunum þegar Ragga var spurð hverjir væru eftirlætisveitingastaðir hennar, hversdags og til hátíðabrigða. „Ég þarf reglulega að fara á Tight á Hyskenstræde og fá skammtinn af „Surf & turf“ eða „Landið og miðin“ eins og ég kalla eftirlætisréttinn minn sem samanstendur af nautalund og rækjum. Ég á meira að segja fastakúnnaborð á staðnum,“ segir Ragga. Þá fer hún reglulega á tvo frábæra indverska staði sem heita Rasoi og The Cave. Aðrir uppáhaldsstaðir eru Ranees, taílenskur veitingastaður við Blågårdsplads og Susu sushi við Møllegade. „Ég borðaði svo yfir mig á Kate’s joint við Blågårdsplads á dögunum og því er sá staður í smá pásu,“ segir Ragga kímin.
Þegar hún fer út að borða til hátíðabrigða þá á er veitingastaðurinn Sokkelund hennar uppáhald. „Þeir bjóða upp á besta ribeye-ið í borginni,“ segir Ragga. Hún nefnir einnig Kul restaurant í Kødbyen, sérstaklega yrir hóp og þá er málið að panta marga smárétti á borðið. Þá sé PS Restaurant og bar afar huggulegur, steikurnar góðar og mikið líf á staðnum að kvöldi til. „Ég borða mig síðan alltaf í óminnisástand á The Market, sem er asískur fusion-staður. Virkilega flottur,“ segir Ragga.

Myndi ekki rata á næturklúbb með áttavita

Þegar kemur að kaffihúsum og börum þá segist Ragga halda sig í sinni heimabyggð. Hennar uppáhaldskaffihús er Café Taxa á Stefansgade. „Það er hverfisbúllan mín og þar sit ég oft drykklanga stund með tölvuna mína og horfi á mannlífið í Nørrebro Park.“ Þá mælir hún með Laundromat Café á Elmegade sem og Mikkeller-börunum sem eru víða um borgina. „Fyrsti staðurinn, sem er flaggskipið þeirra, var opnaður á Stefansgade og þar er oft góð stemming.“ Að öðru leyti segist Ragga ekki vera með sérfræðiþekkingu á næturlífi borgarinnar. „Ég flokkast víst undir miðaldra, hvíta forréttindakonu og mínir næturlífsdagar eru liðnir. Ég drekk ekki áfengi og er yfirleitt kominn heim í bólið ekki seinna en á miðnætti. Mér finnst ég hafa farið hamförum ef ég lafi til klukkan eitt. Ég myndi því ekki rata á næturklúbb með áttavita,“ segir Ragga.

Heilsa og líkamsrækt er Röggu ofarlega í huga og því er ekki úr vegi að spyrja hana hver sé besta líkamsræktin í Kaupmannahöfn. „Ég hef æft í hrútakofanum á Nørrebro, í Fitness DK, í níu ár eða síðan ég flutti til Danmerkur. Þar hef ég rifið í járn og slitið upp stál innan um slæðuklæddar meyjar og vel hærða dökkbrýnda múslíma. Þar hef ég notið þeirra forréttinda að eignast marga góða vini, ekki bara danska heldur af ýmsum uppruna. Það hefur gefið mér tækifæri til að skyggnast inn í daglegt líf annarra menningarheima. Það er nýbúið að gera stöðina upp og nú er þarna frábær aðstaða fyrir crossfit-hamagang og ólympskar kraftlyftingar. Ég er þarna reglulega með kalk upp á bak og skil ekkert eftir nema eigin rasssvita.“

 

Ef Ragga ætti að skipuleggja heimsókn gesta sem aldrei hafa sótt borgina heim þá myndi hún ráðleggja þeim að koma á vorin og sumrin. „Þá lifnar allt við og það er líf á hverju horni. Lifandi tónlist á kaffihúsum, hálfberrassað fólk á Dronning Louise-brúnni, piknikk í almenningsgörðum og sund í sjónum við Íslandsbryggju.“ Hún segir alltaf við sína gesti að þeir geti sjálfir farið í Tívolíið, Nyhavn, Strikið og Magasin en að hún sjái svo um að sýna þeim hliðar á borginni sem aðeins innfæddir þekki. Til dæmis flóamarkaðinn á Jægersborggade, ströndina á Svanemøllen, göngutúr í kringum Søerne, kebab á Nørrebro og öl á Vesterbro. „Það er nauðsynlegt að leigja sér hjól og hjóla um borgina. Hún er nefnilega svo passlega stór að maður nær að dekka hana nánast alla á hálfum degi. Eins er æðislegt að fara í siglingu um síkin eða leigja sér bát á Íslandsbryggju og fara í Louisiana-safnið í Humlebæk,“ segir Ragga. Þá er skylda að heimsækja Fríríkið í Kristjaníu eða Stínu eins og svæðið er kallað. „Flestar borgir hafa markverðar byggingar, kirkjur og söfn en Stína er eitthvað sem þú finnur ekki annars staðar.“ 

 

Vorið lúrir handan við hornið og segir Ragga að það þýði einfaldlega að fram undan séu sex mánuðir af botnlausri gleði. „Nú er bara að krossa fingur og vona að sú gula heiðri okkur Kaupmannahafnarbúa með meiri nærveru en tvö síðustu sumur.“

Lestu einnig: Borgin mín, Moskva: „Ekkert er fegurra en Moskva í maí“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Bikinímynd Kim Kardashian að athlægi – Sérð þú af hverju?

Bikinímynd Kim Kardashian að athlægi – Sérð þú af hverju?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Guðmundur H. Garðarsson er látinn

Guðmundur H. Garðarsson er látinn
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.