Leigubílstjórinn sem ók strokufanganum Sindra Þór Stefánssyni upp á Keflavíkurflugvöll á þriðjudag er búinn að gefa sig fram við lögreglu.
Þetta staðfesti Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is. Maðurinn er búinn að gefa skýrslu hjá lögreglu en hann er þó ekki talinn tengjast málinu á neinn hátt.
Ólafur sagði í samtali við mbl.is að skýrslutakan yfir leigubílstjóranum hefði ekki gefið lögreglu neinar frekari vísbendingar um hvar Sindri er niðurkominn.