fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi var stöðvaður af sérsveitinni: Grunaður um að veifa byssu í Bretlandi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. apríl 2018 15:49

Ísland mætti Perú í vináttuleik.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaður í fótbolta, segir kostulega sögu í þættinum Draumurinn um HM, sem sýndur verður á RÚV í kvöld. Hann lék með Brentford á Englandi á árunum 2005 til 2007 og lenti þá í því að vera handtekinn af sérsveitinni þar, þó algjörlega saklaus.

Ólafur segist hafa lent í þessu þegar hann var að keyra á æfingu með Brentford. „Ég legg af stað bara eins og venjulega, þetta var venjulegur dagur og ég stoppa á rauðu ljósi og ég sé að það er lögreglubíll fyrir aftan mig og ég sé alveg greinilega að hann er að tala í talstöðina og hann er að glápa á númeraplötuna hjá mér,“ segir Ólafur.

Hann segir þegar hann var kominn á æfingasvæðið voru margir lögreglubílar á eftir honum. Einn sérsveitarmaður, grár fyrir járnum, bankar á rúðu hans: „Ég vissi ekkert hvað var að gerast. Svo leita þeir í bílnum og fundu auðvitað ekkert. Þá kom í ljós að í mínu hverfi, sem ég bjó í, var einhver sem hafði veifað byssu á lögregluþjón og hoppað upp í silfurlitaðan bíl á erlendum númerplötum, akkúrat á þessum tíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“