fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Fór ekki að fyrirmælum lögreglu – Braut bílrúður með hamri

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 20. apríl 2018 06:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á tólfta tímanum í gærkvöldi var ungur maður, sem var í annarlegu ástandi, handtekinn fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Hann hafði ítrekað reynt að komast inn í hús en var ekki velkominn þar og höfðu lögreglumenn ítrekað vísað honum frá en alltaf kom maðurinn aftur. Hann var vistaður í fangageymslu.

Skömmu fyrir miðnætti var maður, sem var í annarlegu ástandi, handtekinn í Kópavogi en hann er grunaður um eignaspjöll. Tilkynnt hafði verið að maðurinn væri að brjóta rúður í bifreið og notaði til þess hamar. Maðurinn var vistaður í fangageymslu.

Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um umferðaróhapp á Sæbraut við Laugarnesveg. Þar hafði bifreið verið ekið á kantstein. Engin slys urðu á fólki. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkiniefna og með fíkniefni í fórum sínum. Hann var vistaður í fangageymslu.

Þrír ökumenn voru handteknir í nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra hafði aldrei öðlast ökuréttindi og var með meint fíkniefni í fórum sínum.

Einn ökumaður var handtekinn í gærkvöldi, grunaður um ölvun við akstur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“